Flutningur

Upprisa gamla bloggsins orðin að veruleika

www.runhvit.bloggar.is


Alveg ótrúlegir...

...þessir svikarar. Og það er í alvörunni til fólk sem trúir þessu og gefur upp kortanúmer, já eða sendir pening út.
Það eru nú ófá e-mailin sem maður hefur fengið um að maður hafi unnið í breska lottóinu, eða frá erfingjum sem eiga erfitt með að losa arfinn og þurfa smá pening til þess Grin Ég hef tvisvar fengið bréf í gegnum bréfalúguna hjá mér þar sem mér er boðið á einhverja svaka ráðstefnu á Grand hótel þar sem átti að kynna fólki verslun á netinu eða eitthvað svoleiðis bull. Það voru fullt af vörumerkjum á bréfunum eins og e-bay, yahoo o.þ.h. Svo átti ég að fá einhverja svaka tösku að gjöf og kvöldmáltíð ef ég myndi mæta. Það eina sem ég þurfti að gera var að staðfesta komu mína með því að hringja í símanúmer. Ég féll nú ekki fyrir þessu rugli og kom svo á daginn að þetta voru svikarar og þegar þú hringdir í símanúmerið var einhver upphæð skuldfærð á reikninginn þinn. Ég man nú ekki hvort símafyrirtækin brugðust eitthvað við þessu eða hvort fólk þurfti bara að borga.

Þetta lið er alveg ótrúlega útsmogið! Bandit


mbl.is Reynt að svíkja út kreditkortanúmer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég bara varð...

Fortíðarhrollur dauðans í gangi hérna... hárgreiðslan, dansinn, fötin og mótorhjólið! Aaahhh!!

 

I'll be loving you foreeeeveeeeeerr!! Hver man ekki eftir að hafa legið upp í rúmi, hlustað á þetta lag aftur og aftur, og látið sig dreyma um sykursæta hljómsveitarstráka. Flest allar sem kannast við þetta hafa eflaust látið sig dreyma um Prince wannabe-ið, óþroskaða gaurinn eða "slæma strákinn í leðurjakkanum" en ekki hún Svanhvít. Ónei, ég lét mig dreyma um Danny Zuko wannabe-ið og Ingvars look alike-ið. Ó guð minn góður... hvað er ég að játa hérna?... Blush


Æ greyið...

...hana vantaði bara pabba til að knúsa. Og í heil 3 ár! Aumingja litla pabbastelpan... en það er alltaf gott að geta kennt einhverju öðru um en eigin veikleika. Er þetta ekki bara enn eitt alkohólista einkennið hjá henni, að taka ekki ábyrgð á því sem hún gerði? Ég bara spyr.
mbl.is Skorti föðurímynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týpískt!

Alveg er þetta týpískt fyrir íslendinga. Heiðin ófær og þá hugsa allir "já, nei, nei, ég kemst alveg yfir... það kemur ekkert fyrir mig!!" Ætli meirihluti þeirra sem bíða óþreyjufullir séu ekki karlmenn á jeppum með lítið undir sér... svona það fyrsta sem manni dettur í hug.
mbl.is Ætla yfir þrátt fyrir lokun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ó jeminn eini!!

Hver man ekki eftir þessum sykursætu drengjum sem heilluðu ungar stúlkur upp úr skónum. Við systurnar vorum miklir aðdáendur, rifum myndir og plaköt úr tímaritum og áttum sitthvora segulbandsspóluna með þessum piltum. Það var sko slegist um þær! En samt var Helga nágranni okkar úr Fjarðarstrætinu enn harðari aðdáandi en við og átti hún alveg fullt af dóti tengt nýju krökkunum í húsalengjunni. Ég man sérstaklega vel eftir armbandsúrinu LoL  Fortíðarfiðringurinn alveg að fara með mig hérna!
En ég held að svona comeback sé ekki sniðugt þar sem þessi tónlist er kannski ekki beint lífseig, heldur bundin ákveðnu tímabili sem er sem betur fer lööööönnngu liðið. Ætli það sé græðgi sem drífi þá í að reyna þetta, eða kannski bara heimska?

P.s. mikið rosalega finnst mér þessi aftasti á myndinni (sem ég man ekki hvað heitir) líkur Ingvari Alfreðs Woundering


mbl.is New Kids on the Block saman á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ledger látinn

Mig langaði ekki að trúa þessu þegar ég las þetta á erlendri síðu í gær, en þegar þetta fór að breiðast yfir á allar helstu fréttasíðurnar varð ég að gleypa þetta. Þessi frábæri leikari er fallin frá og skilur eftir sig fjölda góðra mynda. Ég uppgötvaði hann í myndinni "10 things I hate about you" og hef síðan þá verið mikill aðdáandi. Hann var stórkostlegur leikari!
mbl.is Segja Ledger hafa látist af slysförum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar líkur...

...af því Kína hótaði að selja öll skuldabréf bandaríkjamanna sem þeir eiga, og setja þá á hausinn ef af þessu yrði. Andvirði þeirra er víst fimmföld velta bandaríska ríkisins. Heyrði þetta á götunni en veit ekki hvort þetta er satt eða bara gróusaga, en þessi frétt ýtir undir trúverðugleika hennar.
mbl.is Engar líkur á aðgerðum gegn Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur til fortíðar

Er bara hægt að gera svona samning eftir á. Já, heyrðu bíddu, ég er að spá í að taka samningnum sem mér var boðin fyrir 21 ári síðan! Já ekki málið vinur, þá bara máttu fara!
mbl.is Látinn laus eftir 21 ár á dauðadeild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðun?

Er þess virði að friða þessa kofa? Ef svo er, af hverju var ekki löngu búið að því? Mér persónulega finnst þetta ekkert sérstök hús og mætti alveg rífa þau og byggja hótel þarna. En það er bara mín skoðun.
mbl.is Ráðherra friði Laugavegshús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband